Algengt er að fyrirtæki ráði stjórnendur úr hópi sinna færustu sérfræðinga. Mikil fagþekking, starfsaldur og þekking á starfseminni eru vissulega verðmætir eiginleikar, en þeir tryggja ekki sjálfkrafa góða stjórnunarhæfni.
Að vera góður sérfræðingur og að vera góður stjórnandi eru tvö ólík hlutverk.
Stjórnandi þarf að geta leitt fólk, skilið fjárhagsleg áhrif ákvarðana, forgangsraðað verkefnum, framselt ábyrgð og þróað starfsemina til framtíðar.
Það getur einnig reynst krefjandi að taka við stjórnunarstöðu yfir fyrrverandi samstarfsfólki. Samskipti breytast, gera þarf nýjar kröfur og stundum taka erfiðar ákvarðanir gagnvart einstaklingum sem áður voru jafningjar.
Innri framgangur getur verið afar verðmætur fyrir fyrirtæki, en honum þarf að fylgja markviss undirbúningur, stuðningur og þróun stjórnunarhæfni.
Eru fyrirtæki að ráða einstaklinga vegna þess hversu vel þeir sinna núverandi starfi eða vegna þess hversu vel þeir eru í stakk búnir til að sinna næsta starfi?
